Share

Sími Ísland
+354 847 5581


Sími Danmörk
Tlf. Danmark
+45 87 59 20 54


Senda tölvupóst

Forsíða



EOR skráningar:

Ráðgjöf til fyrirtækja varðandi EOR nr og skráningar.
Útbreiddur misskilningur virðist vera í gangi varðandi EOR tollakerfið á ESB svæðinu og aðgang íslenskra fyrirtækja að þessu kerfi.  Margir virðast álíta, að þar sem Island ekki er meðlimur í ESB, þá hamli þetta viðskiptum Íslands og íslenskra fyrirtækja sem láta framleiða fyrir sig vörur t.d. á Spáni og í öðrum löndum á ESB svæðinu.  Reyndin er sú að það er mjög einfalt mál að ganga frá þessum skráningum fyrir íslensk fyrirtæki.  Hafið samband og fáið ráðleggingar.


Ert þú að flytja til Danmerkur?

Vantar þig aðstoð? Ég veiti persónulega aðstoð við flest sem hefur með flutninga til Danmerkur að gera. 

Hvað get ég aðstoðað ykkur við?
  • Húsnæði - leiga / fasteignakaup
  • Nám ( ráðgjöf) -  skólar - leikskólar
  • Barnabætur / meðlag
  • Ökutæki  á íslenskum númerum - reglur  - umskráning
  • Bankamál - kort - netbanki
  • Tryggingar
  • Atvinnumál - ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit ( CV)
  • Þýðingar 
  • Ráðgjöf
  • Fyrirtæki - stofnun
  • Skattaskýrslur
  • Bókhald
Þegar flutt er til annars lands eru margar spurningar sem vakna og margt sem þarf að huga að. Sérstaklega ef börnin manns eru að flytja t.d. til að hefja nám, eða maður er sjálfur að flytja og tekur fjölskyldu sína með.

Við viljum öll að allt gangi sem auðveldast og best fyrir sig, að allt sé "öruggt”, að við þurfum ekki að hafa áhyggjur eða óttast neitt, en það er bara aldrei einfalt mál að flytja til annars lands! Maður þekkir ekki "kerfið" og það veldur streitu og óöryggi. Allt er nýtt og framandi í byrjun, það er erfitt að gera sig skiljanlegan á skólabókardönskunni og erfitt að skilja Dani. Ég get hjálpað og leyst úr flestum þeim spurningum sem kunna að vakna þegar flutningar af þessu tagi standa til.

Þið íslendingar sem nú þegar búið í Danmörku: Þið getið einnig haft samband, ég veiti ýmsa ráðgjöf t.d. í sambandi við fjármál, fasteignakaup, skattamál, umsóknir og margt fleira.

Hafið samband ef þið þurfið að láta þýða texta, ritgerðir eða fleira þ.h. Tek að mér ýmis textaskrif á dönsku.

Veðurspá, Kaupmannahöfn næsta sólarhring

Veðurspá, Árósar næsta sólarhring


Tilkynningar

  • Býð nú uppá bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki í Noregi Sem nýjung get ég nú boðið íslenskum fyrirtækjum uppá bókhaldsþjónustu ( Mamut bókhaldskerfið) skráningu fyrirtækja í Noregi, skráningar í Altin.no ( mva, skatt, trygde) og ráðgjöf í sambandi við skatt ( fradrag ...
    Posted Apr 14, 2011 1:51 PM by Sigrun Thormar
Showing posts 1 - 1 of 1. View more »

Nýjung
Noregur:
Býð uppá ráðgjöf til þeirra sem hafa hug á að vinna í Noregi gegnum íslenskt EHF eða stofna norskt AS félag.  Get séð um allar skráningar og bókhald. Hef "repræsentant" ( umboðsmann) í Noregi fyrir þau EHF sem þarfnast MVA ( vsk) skráningar.



Danmörk:
Þær breytingar hafa orðið á starfsháttum mínum að ég fluttist sjálf til baka til Íslands í maí 2010, eftir 30 ára búsetu í útlöndum. 

Þjónusta mín breytist þess vegna miðað við áður. Nú get ég hitt viðskiptavini mína áður en þeir flytja og halda til Danmerkur, undirbúið með ykkur allar umsóknir og pappíra. Einnig býð ég upp á viðtalstíma, sem geta komið sér vel fyrir þá sem eru í umhugsunarferlinu. 

Ég mun ekki hafa tök á að veita nákvæmlega sömu þjónustu og áður í sambandi við húsnæðisleit fyrir hvern einstakan viðskiptavin.  Ég er þó með mörg góð sambönd við stóra leigusala og get því aðstoðað ykkur á þann hátt.